28.04.2010 09:07:57 / elinaogco
Nei hæ ekki hélt ég að þessi síða væri en virk en fyrst svo er þá er ekki seinna að vænna en að blogga pínu ..... Nú er mai að ganga í garð og þetta ár er sko ár breytingana það er orðið nokkuð ljóst.... veit ekki alveg með mín vinnumál hvernig þau koma til með að þróast, því ég hef verið ansi óheppin heilsulega sé það sem af er ári og sit nú heima 6 vikuna eða síðan 21 mars með slitin liðbönd á vinstir ökla og fæ að vita í næstu viku hvort þarf að bródera slitið eða hvað!!! Mér tókst svo skemmtilega að fljúga en lendinguna þarf ég að æfa eitthvað betur... Náði sem sagt í útkalli að fljúga þannig að ég lenti á bakinu einn hryggjaliður gegg til og svo sleit ég og teygði liðböndin á öklanum.... arggg
En allavegan mitt fyrsta útkall í langan tíma Eldgos á Fimmvörðuhálsi... í vegalokun ... Og ekki sá ég svo gosið á Fimmvörðuhálsi nema á myndum... Kemst ekkert á hækjum uppá fjöll ... en með því að vera svona stilt og prúð og fara eftir því sem doktorinnnn segir þá ætti ég að geta með þessu framhaldi komist á fjöll í sumar eins og planið var... Og labba Laugaveginnnn... geri þetta bara á aðeins lengri tíma en g0ngurnar í haust eru sennilega úr sögunni í ár..
Annars er bara Pollý Anna tekin á þetta allt saman og virkar bara nokkuð vel

Ég segi þá takk í dag og ef einhver er að lesa þetta endilega commentið eð a skrif í gestabókina
»
19.10.2009 09:50:44 / elinaogco
Voðalega er maður lélegur eitthvað hér inni.... ætli það sé faceið eða hvað er málið... ??
En er ekki komin tími á að bæta úr því aðeins og deila því með þeim sem nenna að lesa bloggið... hvað maður er að bardúsa...
En allavegan ´helgin sem var að klárast ... það var sko nóg að gerast ... Talnig á laugardeginum og svo fór ég í mjög svo skemmtilega haustgöngu í svona hálfgerðum óvissuferðar stíl sökum þoku ... Við vorum 3 sem fórum í þessa haustgöngu hjá flubbó.. Stefnan var tekin á þríhyrnig og löbbuðum við næstum 14 km.... geðveikt gaman !!! Við löbbuðum uppúr Vatnsdalnum merkta gönguleið ..komust samt ekki uppá fyrsta tind en löbbuðum með honum öllum kikkuðum yfir toppinn svona ca um miðju... héldum síðan áfram eftir honum endilöngum og niður fórum við hinu megin.. þegar niður var komið var labbað til baka meðfram ánni... Við Elva reyndar bara hálfa leið því hún tognaði þannig að Garðar skokkaði eftir bílnum... Fengum við allavegana veður... Rigningu, Rok , Þoku snjókomu, sliddu, sviptivinda og í lokin smá sól og pínu golu...... og smá logn sem fór mjög hratt framhjá
»
04.08.2009 00:55:27 / elinaogco
Haltu áfram að stíga skref í
átt að því sem þig dreymir
um, mörg lítil skref gera
gæfumuninn.
Allt í einu getur draumur þinn
orðið að veruleika.
Lovja mine ven
»
24.07.2009 23:39:57 / elinaogco
Hafðu alltaf ástina að leiðarljósi.
Ástin er það afl sem færir okkur
vellíðan á öllum sviðum.
Nærðu ástina í hjarta þínu.
Og elskaðu sjálfan þig!!!
Fallega 
»
30.03.2009 08:35:56 / elinaogco
Það er svo flott veður úti í dag og var líka í gær og þó að það sé kalt ... þá er alveg frábært hvað dagurinn er orðinn langur... ruglar mann pínu stundum.. Kvöldmaturinn er orðinn klukkan átta á kvöldinn svona þegar maður gleymir sér ... bara úppsí.. t.d í gær skelltum við Rebekka okkur á skíði og það var ekkert smá gaman. Og ég get svarið það þetta með skíðinn er eins og að hjóla.. Gleymist aldrei
En er svo ekki spurning að henda hér inn einum svona skemmtlilegum skilaboðum úr hulduheimum:
Ef þú samþykkir sjálfan þig, þá skiptir
höfnun annara ekki eins miklu máli.
Hafið góðan dag
»
21.03.2009 23:12:19 / elinaogco
Hæj mine ven =o)
Ég fatta stundum ekki alveg hvað ég þarf að ganga í gegnum og eða hvað ég á að læara af því að vera meir og minn í bælinu ..... má bara ekkert vera að því... takk fyrir það.. Á mér fullt að draumum sem mig langar að láta rætast og valla geri ég það í bælinu alltaf veik... er kannski að taka út eitthvað tímabil og verð svo 100ára eldspræk á móturhjóli með hundrað tattoo... með..silfurlitað sítt hár flaksandi undan svörtum hjálmi... muhahaha.... KANSKI???? EN allavegana pæling helgarinnar er:
Ævintýri gerast þegar maður leyfir sér
að lifa án þess að ákveða allt fyrirfram.
Ævintýrin er það sem gerist óvænt og
kemur oft án fyrirvara. Ekki hafa of
mikið skipulag í lífinu, hafðu pláss
fyrir ævintýri.
Þetta er nú svoldið sniðugt þykir mér og spennó enda ekki svo mikið skipulögð persóna.... Er nú að pæla í að draga eitt en ... og það er:
Óvissa er eini stöðuleiki lífsins,
því allt er breytilegt.
það gerir lífið spennandi.
Nokkuð góð spil... knús og ekki gleyma að kvitta þar að segja ef einhver er þarna úti enþá hummm hvar eru allir... já sorrý ..audda á andlitsbókin að taka quiz....
hehe lovja
»
18.03.2009 08:16:16 / elinaogco
»
16.03.2009 08:49:03 / elinaogco
»
13.03.2009 13:25:46 / elinaogco
Vá hvað þetta ár er eitthvað að flýta sér ... áramótin nýbúin og mars hálfnaður.... En allavegan í dag er einn af uppáhalds deginum mínum föstudagurinn 13.....
Og ég held til að toppa þetta er fullt tungl líka.... Bara flott... En svona í vikulok ætla ég líka að draga spil og í því stendur..........
Það er enginn opinn og fyrirstöðulaus enda væri það ekki æskilegt.
Allir þurfa að setja mörk á hvað þeir vilja
samþykkja og hvað ekki.
Það er gott að vera opinn fyrir hugmyndum annara og skoða þær fordómalaust,
en ákveða svo hvort þær henti manni.
Ekki gleypa við hverju sem er.
Hafið góða helgi...ég ætla allavegan að gera það
»
12.03.2009 08:45:04 / elinaogco
Ástin getur alltaf komið þér á óvart.
Hún er það afl sem er sterkara
en allt annað í lífinu.
Ástin er kjarni lífsins
og allt er henni viðkomandi.
Leyðu þér að auðsýna hana.
Oft er sár reynsla fjársjóður á öðrum tíma.
Það má alltaf læra af því sem kemur fyrir í lífi manns.
Það var og ....
Njótið dagsins!
»
10.03.2009 08:11:13 / elinaogco
Hafðu gætur á því að allt sem þú óttast kemur fram ef þú hugsa of mikið um það.
Það verður eins og ósk þín og stefna ef þú einbeitir þér stöðugt að því.
»
09.03.2009 07:51:13 / elinaogco
Umburðarlyndi er góður kostur í mörgum tilvikum, en það getur líka snúist upp í andhverfu sína þegar fólk lætur vaða yfir sig og setur ekki mörk. Hafðu það hugfast og settu þín mörk.
Hafið góðan mánudag... það ætla ég allavegan að gera
»
06.03.2009 17:51:01 / elinaogco
Hugarró er mikilvæg í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur. Hún gefur manni grunn til að standa á. Oft er gott að gefa sér tíma til að kyrra hugann í stað þess að vaða áfram með offorsi. Það er oft undirliggjandi vandi rifrilda að fólk gefur sér ekki tíma til að róa sig.
Risa knús til ykkar og eigið góða helgi
held svo áfram að setja inn svona glósur í næstu viku
»
05.03.2009 08:12:46 / elinaogco
Haltu áfram þó ekki sé allt skemmtilegt í augnablikinu. Fyrirstaðan er bara smásteinn á langri leið. Oft má ná langt með því að muna að smásteinn á veginum er engin hindrun í löngu ferli. 
Hafið góðan dag
»
04.03.2009 17:48:16 / elinaogco
Viðurkenning er þegar aðrir samþykkja að það sem þu ert að gera sé gott. En þó enginn viðurkenni það sem þú ert að gera segir það ekki neitt um gæði verka þinna. Þú getur samt verið að vinna gott verk.
Takk í dag
»
Síður:
1 2 3 ...
12